Þjónusta

Rafeining ehf tekur að sér alla almenna raflagnavinnu fyrir íbúðarhús, iðnaðarveitur,raflagnir skipa, töflusmiði vélaviðgerðir o.fl.

Frá stofnun fyrirtækisins höfum við unnið við fjölmargar veitur og má nefna t.d. Málmsteypu Þorgríms Jónssonar, Vélsmiðju Guðmundar, Vogabæ ehf, magvíslega vinnu við veitur í eigu Samherja og fyrirtækja í þeirra eigu, Malbikunarstöð fyrir Hlaðbæ Colas, auk töflusmíði fyrir fjölmarga aðila. 

Ennfremur hefur Rafeining ehf séð um nýlagnir, viðhald og breytingar á raflögnum skipa og má nefna að stærsti viðskiptavinur fyrirtækisins til margra ára er Samherji h/f á Akureyri þar sem unnið hefur verið bæði fyrir Samherja svo og dótturfyrirtæki þeirra bæði í Færeyjum, Þýskalandi og Skotlandi. Þá hefur fyrirtækið séð um að hluta rekstur raflagna fyrir Íslandsbleikju í Grindavík. 

Árið 2004 var gerður samningur við fyrirtækið Gozo Channel á Möltu um smíði 12 stjórnskápa fyrir 1000kw mótora fyrir skrúfubúnað  á ferjum sem fyrirtækið á og notar til flutninga á milli Möltu og Gozo. Stjórnskápar þessir voru með mjúkræsum og beinkeyrslu (bypass) fyrir hvern mótor en fjórir slíkir skápar eru í hverri ferju. skáparnir voru smíðaðair á verkstæði okkar í Hafnarfirði og síðan fluttir til Möltu þar sem að við önnuðumst uppsetningu þeirra og gangsetningu. Auk þessa smiðaði Rafeining ehf startskáp með svipaðri úrfærslu fyrir landtengibúnað fyrir ferjurnar. Verk þetta hófs í byrjun árs 2005 og stóð til ársins 2007 og höfum við ennþá verið að leysa verkefni fyrir Gozo Channel sem hefur verið mjög ánægjulegt að eiga viðskipti við. 

Rafeining ehf hefur nú um nokkurt árabil framleitt stjórnskápa fyrir skolpdælubrunna. Stjórnskápar þessir eru nú í notkun á allmörgum stöðum þ.e. í Hafnarfirði, Akranesi, Siglufirði og Mosfellsbæ. Þá framleiddi fyrirtækið dælustýringar sem notaðar eru í Álverksmiðjunni á Reyðarfirði. 

Við framleiðum einnig  stjórnskápa fyrir dælingu á feskvatni. Um er að ræða stjórnun sem getur verið hvort sem er fyrir 2 eða 3 dælur og stjórnast þær með tíðnibreytum  sem sjá um að stjórna dælingu skv þrýstiþörf kerfisins svo og að tímajafna dælunum