Tækjabúnaður

Rafeining ehf er umboðsaðili fyrir eftirtlalda framleiðendur:

Botab Svíþjóð www.botab.se sem er framleiðandi á mjög víðtækri framleiðslulínu á svið krana t.d. brúarkrana (hlaupakatta)

Dry Air Systems Bandaríkjunum www.dryairsystems.com Dry Air er framleiðandi á loftsíum til notkunar þar sem þarf að vera sérlega vel þurrkað svo sem á plasma vélum, og loftstýrðum vélum ýmis konar. 

Edmo Lift Svíþjóð www.edmolift.se lyftubúnaður af ýmsum gerðum bæði til notkunar til land og sjávar. Einnig ýmsar gerðir lyftubúnaðar til notkunar sem vinnuborð allt frá 500-10000 kg lyftigetu. 

Emotron Svíþjóð www.emotron.se  mjög rótgróið og virt fyrirtæki á sviði hraðabreyta, mjúkræsa, straumvaka  og  hefur einnig sérhæft síg í framleiðslu stjórnbúnaðar fyrir hvers kyns kranastjórnun. 

Emri í Hollandi www.emri.nl  einn fremsti framleiðandi á spennustillum fyrir rafala svo og er mjög framalega á svið viðgerða á rafölum og mótorum. Höfum ávalt á lager allar algengustu tegundir spennustilla frá Emri.

Bio-Circle  www.bio-circle.de er framleiðandi á vélum sem sérstaklega eru ætlaðar til hreinsunar á Tig suðuferli á ryðfríu stáli. Tæki þessi eru til í 3 mismunandi útgáfum þ.e. mini Surfox,  Surfox 103 og Surfox 203. Um er að ræða verulega byltingu frá fyrri hreinsunaraðferðum sem hafa til þessa verið framkvæmdar með sýru. Ath að öll hreinsiefni frá Bio-Circle eru umhverfisvæn.

Quadritalia Ítalíu www.quadritalia.com okkur er sérstök ánægja að geta nú boðið mjög víðtæka framleiðslulínu af töflum og töfluskápum allt eftir óskum kaupanda. Quadritalia hefur um árabil verið mjög framalega á sviði skápaframleiðslu fyrir rafmagnsiðnaðinn. 

Scheele Elektrik Þýskalandi www.scheele-elektrik.de Tenglakassar og ljósabúnaður úr mjúku gúmmíefni níðsterku. Tenglakassarnir fást fyir bæði 1 og 3ja fasa tengla allt frá 42 volta kerfum í 400 volta kerfi allt eftir óskum kaupandans.

Sérstök nýjung eru sparperuljós sem fást í 3 útfærslum 1 peru, 2 peru og 3 peru. Þessi ljós eru mjög hentug fyrir lýsingu í tönkum. Þá eru í boði sérstök ljós sem að hafa m.a verið notuð um borð í loðnuveiðiskipum með góðri reynslu. Ljósin eru afar vel vatnsvarin og eru með 24V peru.

Teksan Tyrklandi www.teksangenerators.com  Nú nýlega höfum við hafið sölu á ljósavélum  frá Teksan í Tyrklandi. Í boði eru stærði allt að 3300KVA  og geta kaupendur valið ýmsar gerðir vela svo sem Perkings, Mitsubishi, Cummins, Volvo o.fl. Vélarnar eru bæði til afgreiðslu með og án hljóðeinangrandi hlífa svo og á vagni sé þess óskað.